FH-stúlkur mættu í Mýrina á föstudagskvöldið til að leika gegn Stjörnunni. Ekki var kannski búist við neitt sérlega spennandi leik og það kom á daginn.
Stjarnan byrjaði með miklum látum. Lék ágæta vörn og refsaði FH grimmilega með hraðaupphlaupum. Um miðjan hálfleik hafði Stjarnan skorað 12 mörk gegn 4 og höfðu þrjú marka FH komið úr vítaköstum. Áfram hélt Stjörnuvélin að malla og þegar flautað var til hálfleiks var sigurinn nánast í höfn en þá var staðan 21-9. Solla hafði farið hamförum þessar fyrstu 30 mínútur og gert tíu mörk og leikið sérlega vel í vörninni líka. Þá hafði Kristín verið ágætlega á verði bak við aktíva vörn. Þessi munur hefði auðveldlega getað verið meiri – ef nokkur sannkölluð dauðafæri hefðu verið nýtt.
Það hefur loðað við liðið í undanförnum leikjum að mæta frekar kalt inn í seinni hálfleikinn og missa niður þá stöðu sem búin hafði verið til í fyrri hálfleik og í þessum leik var það sama upp á teningunum. Værukærð í vörninni, lítil markvarsla og aukning á tæknifeilum þýðir ekkert annað heldur en vatn á myllu andstæðingsins og eftir 20 mínútna leik hafði FH náð að minnka muninn í 8 mörk, 29-21. En Stjörnustelpurnar tóku sig saman í andlitinum seinustu mínúturnar og sigldu heim öruggum 14 marka sigri 38-24.
Solla var eins og áður sagði, sjóðheit í leiknum – sérstaklega í fyrri hálfleik og Hanna var mjög drjúg í markaskorinu. Þá áttu Sandra og Hildur flottar innkomur.
Markaskorar Stjörnunnar: Solla 15, Hanna 8 (2v), Sandra 4, Hildur 4, Rut 3, Guðrún Hrefna 2 og Esther 1 mark.
Kristín varði 12 skot og þar af fóru 4 aftur til mótherja. Helga varði 2 bolta og fóru þeir báðir aftur til mótherja.







Stjarnan hélt í Digranesið sl. miðvikudag til spila bikarleik gegn liðið HK. Í fyrra náði HK að slá Stjörnuna óvænt út úr bikarnum og því átti Stjarnan harma að hefna.












